Hola Mexicófarar.
Ég var beðin um að nálgast nöfn og kennitölur á öllum þeim sem ætla að fara til Mexicó. Ferðaskrifstofan vill bóka flugið okkar fyrir jól. Ég er með listann og af okkur sem erum í bekknum en mig vantar nöfn og kennitölur á mökunum sem ætla að koma með. Það eru nú þegar nokkrir búnir að senda á mig upplýsingar um makann sinn en þeir sem ekki eru búnir að því bið ég vinsamlegast um að senda á mig sem fyrst svo við getum bókað flugið út.
Svo er eitt áður en við bókum flugið, ég var að tala við Kristrúnu á skrifstofunni varðandi prófin í maí. Síðasti prófadagurinn er föstudagurinn 16.maí, hvað finnst ykkur um að fara út þriðjudaginn 20.maí eða miðvikudaginn 21.maí og koma heim 3. eða 4. júní. Er þetta ekki bara fínn tími fyrir okkur að fara út?
Ef þið hafið einhverjar athugasemdir á dagsetninguna þá endilega commentið en sendið mér nöfn og kennitölur á þeim mökum sem ætla að koma með á mailið mitt brkristj@khi.is (ég vil ekki fá kennitölurnar á netsíðuna, bara svona öryggisins vegna
Ég er ekki enn búin að fá nánari upplýsingar frá ferðaskrifstofunni um hótelin, en stúlkan sem sér um ferðina hjá okkur er að spyrjast fyrir erlendis hvernig þetta er allt saman. Svo er ég líka að bíða eftir að fá nafn á hótelinu í NY(sem verður á Manhattan). Við Oddný mun setja allar þær upplýsingar sem við fáum hér á Dramasíðuna um leið og við vitum eitthvað. Ætlum að setjast niðu með stelpunni eftir próf.
Svo er bara um að gera að horfa á S-Amerísku sápuna á stöð 2 og æfa sig í spænskunni
. Var að spá í hvort við Dramadrollur ættum að vera með áskorun á Sjampóin og hafa mottukeppni eftir áramót.
Hver verður með flottustu, mexicósku mottuna. Skeggsöfnunin(mottusöfnun) hefst 15. jan og endar síðasta daginn fyrir vettvangsnámið, þá verður valin flottasta mottan.
Endilega verum duglega að commenta.
Adiós
Senorita Brynja